Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

KOM - Mannamót

KOM hefur í yfir 20 ár tekið að sér skipulagningu og framkvæmd alls kyns mannamóta. Ber þar hæst alþjóðlegu fjölmiðlamiðstöðina sem komið var á fót í tengslum við leiðtogafundinn í Höfða árið 1986 og opnunarhátíð Alcoa Fjarðaáls árið 2007. Þegar efna á til mannamóts eru ótal atriði sem hafa þarf í huga, hvort sem um er að ræða ráðstefnu, málþing, stórafmæli, vígsluathöfn eða síðdegismóttöku. Mistök geta reynst dýr, hvort sem þau eru metin í fjárhæðum eða skaða á orðspori, og því getur margborgað sig að leita eftir aðstoð fagaðila sem hefur reynslu á þessu sviði.