Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Ráðstefnur

Starfsfólk KOM hefur langa reynslu af skipulagningu ráðstefna. Hlutverk KOM getur verið allt frá því að veita ráðgjöf til þeirra sem hyggjast efna til ráðstefnu, yfir í það að taka að sér alla skipulagningu og framkvæmd. Fjölmörg fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök hafa á undanförnum árum nýtt sér þjónustu KOM á þessu sviði.

KOM hefur m.a. haft umsjón með ráðstefnum fyrir Evrópusambandið, Sameinuðu þjóðirnar, álframleiðendur á Íslandi o.fl.  Ráðstefnur sem KOM hefur annast hafa bæði verið haldnar hér á landi og erlendis, t.d. í Bandaríkjunum, Bretlandi, Danmörku, Frakklandi, Þýskalandi og á Spáni.

KOM tekur m.a. að sér:

  • Val og pantanir á viðeigandi húsnæði
  • Val og pantanir á veitingum
  • Gerð boðslista
  • Aðstoð við gerð dagskrár
  • Útlit og uppsetningu
  • Hönnun og skrif fundargagna
  • Bókanir og móttöku erlendra gesta
  • Dagskrá fyrir gesti, innlenda sem erlenda
  • Viðveru og framkvæmd
  • Fjölmiðlun