KOM og Þekkingarmiðlun í samstarf
KOM almannatengsl og Þekkingarmiðlun hafa tekið upp samstarf um námskeið í fjölmiðlun og áfallastjórnun. Fyrsta skrefið verða þrjú opin námskeið sem haldin verða í haust. Fyrirtækin hyggjast einnig eiga samstarf um sérsniðin námskeið sem þau bjóða fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum.
Þekkingarmiðlun mun auglýsa námskeiðin í sinni dagskrá og sjá um skráningar og annað utanumhald. Leiðbeinendur verða Jón Hákon Magnússon og Þorsteinn G. Gunnarsson, ráðgjafar KOM, sem búa yfir áralangri reynslu úr fjölmiðlum og almannatengslum.
Námskeiðin sem boðið verður upp á haustið 2007 eru:
Árangursrík fjölmiðlun 27. sept. kl. 8:00 – 12:30
Námskeið í áfallastjórnun 25. okt. kl. 8.00 – 12:30
Framkoma í fjölmiðlum 15. nóvember kl. 8:00 – 12:30
Árangursrík fjölmiðlun
Á tímum upplýsingaflæðis og endalauss áreitis fjölmiðla skiptir stefna fyrirtækja í fjölmiðlasamskiptum miklu máli. Fréttamiðlar og Netið hafa reynst árangursrík leið að viðskiptavinum og því er nauðsynlegt að rétt nálgun sé valin og að lykilupplýsingum sé komið á framfæri á trúverðugan og áhrifaríkan hátt.
Áfallastjórnun
Áfallastjórnun (e. crisis management) felst í því að hindra að óvæntur atburður innan fyrirtækja leiði til krísuástands. Skjót viðbrögð skipta þar sköpum. Því fyrr sem tekist er á við vandann því líklegra er að árangur náist og hægt sé að lágmarka skaðann sem umfjöllun kann að valda.
Framkoma í fjölmiðlum
Framkoma fólks í fjölmiðlum skapar oft ímynd sem erfitt getur verið að breyta. Því skiptir miklu máli að fólk komi vel undirbúið til leiks og geti flutt mál sitt af öryggi og yfirvegun og þannig skapað sér og fyrirtæki sínu gott orðspor til framtíðar. Ráðgjafar KOM hafa þekkingu og langa reynslu af fjölmiðlum og hafa í gegnum árin liðsinnt fjölda stjórnenda við framkomu í fjölmiðlum.
Þekkingarmiðlun (www.thekkingarmidlun.is) var stofnað í byrjun ársins 2002 af Eyþóri Eðvarðssyni og Ingrid Kuhlman. Fyrirtækið sérhæfir sig í því að miðla þekkingu og styrkja þannig einstaklinga og vinnustaði. Það er gert m.a. með námskeiðum, þjálfun, fyrirlestrum og einkaþjálfun.








