Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Námskeið í áfallastjórnun

Á stjórnendanámskeiðum KOM í áfallastjórnun (crisis management) er fjallað um hvernig unnt er að varðveita ímynd  og ásjónu fyrirtækis þegar áfallið dynur yfir. Farið er yfir grunnatriði áfallastjórnunar og stjórnendum kennt að undirbúa sig fyrir „hið ómögulega“. Samskiptatækni nútímans byggist á því að stjórnendur hafi frumkvæði, taki atburðarásina í sínar hendur, í stað þess að bregðast eingöngu við áreiti frá umhverfinu.

Á námskeiðinu verður m.a. reynt að svara eftirfarandi spurningum:

  • Hvers virði er trúverðuleiki og traust?
  • Hvað er gott orðspor?
  • Hvað er ímyndaráfall? 
  • Hvað getur komið fyrir hjá okkur?
  • Fyrstu viðbrögð
  • Yfirlýsingin
  • Áfallateymið
  • Fréttatilkynningin – fjölmiðlaefnið
  • Viðtalið - viðtalstækni
  • Blaðamannafundurinn
  • Við hverja verðum við að tala?
  • Eftir áfallið
  • Að læra af reynslunni
  • Þú tryggir ekki eftir á...