Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Áfallastjórnun

Óvænt áföll eru óhjákvæmileg í allri starfsemi. Þegar þau henda skiptir öllu máli hvernig starfsfólkið er undir áfall búið og hverstu hratt og vel er unnt að ná tökum á atburðarásinni.

Það er lykiatriði að stjórnendur kunni að bregðast við erfiðum aðstæðum og leiti aðstoðar sérfræðinga á því sviði. Mikilvægt er að senda sem fyrst rétt og hnökralaus skilaboð til samfélagsins, sem krefst skýlausra svara.


KOM hefur mikla reynslu af ráðgjöf í áfallastjórnun (crisis management) og viðbrögðum í kjölfar áfalls. Í áfallaþjónustu KOM felast m.a:

  • Fyrstu viðbrögð við áföllum
  • Fjölmiðlavakt og markviss viðbrögð við neikvæðum fréttum
  • Að snúa vörn í sókn og lágmarka ímyndartjónið
  • Ráðgjöf við stjórnendur vegna áfallsins
  • Aðstoð við undirbúning áfallaáætlunar
  • Námskeið í áfallastjórnun
  • Fréttatilkynningar og samskipti við fjölmiðla
  • Ráðgjöf um aðgerðir í kjölfar áfalls

 

Ert þú í áfalli?