Áfallagreinar
20.12.2002
Vertu viðbúinn
Hvað gerir þú þegar símastúlkan lætur þig vita að fréttamaður Stöðvar 2 sé mættur í afgreiðsluna ásamt myndatökumanni og vilja fá viðtal strax um "vondu fréttina" sem dunið hefur yfir? Ertu búinn að undirbúa þig fyrir fyrstu viðbrögð? Ertu búinn að semja fyrstu svörin um aðalatriðin og læra þau utan að? Eða lætur þú símastúlkuna segja að þú talir ekki við "einhverja fréttamenn sem gera ekki boð á undan sér" enda hafir þú nóg að gera við að leysa úr bendunni sem fyrirtækið er búið að koma sér í? Eða vartst þú búinn að byrgja brunninn áður en að.........?? Fyrirtæki, sem hafa annaðhvort alls ekki undirbúið sig eða undirbúið sig illa fyrir áfallið, sem getur skert ímynd og orðspor þeirra, greiða oftast dýru verði fyrir sinnuleysi þegar fram í sækir. Innan fyrirtækisins veldur álitshnekkur sársauka, streitu, vinnuröskun, tekjutjóni og ímyndin beiglast oft til frambúðar. Fyrirtæki, sem aftur á móti hafa undirbúið sig skipulega fyrir áfall ná oftast tökum á vandanum á örskömmum tíma og ímyndartjón verður óverulegt. Þau vita að maður "tryggir ekki eftir á." Svo einföld eru þau fræði. Það er ekki að ástæðulausu að reynslan skuli sýna að vel undirbúin fyrirtæki ná í flestum tilfellum tökum á vandanum á fyrstu klukkustundunum eftir að krísan hellist yfir. Fyrirtæki sem ekki hafa burði eða þekkingu til að bregðast við krísu verða aftur á móti fyrir ómældu tjóni strax á fyrsta degi. Góðir stjórnendur vita að það borgar sig að vera búinn að fjárfesta í áfallaáætlun og þjálfa áfallateymi í fyrstu viðbrögðum. Með öðrum orðum, þá viljum við ráðleggja talsmönnum fyrirtækja að opna ekki munninn fyrr en þeir vita hvað þarf að segja undir slíkum kringumstæðum. Ekki tala út í eitt. Reynið að átta ykkur á skilaboðunum sem fyrirtækið þarf að koma á framfæri og hverjir markhóparnir eru sem þurfa að fá skýr skilaboð frá fyrirtækinu þegar illa gengur. Æfingin skapar meistarann. Jón Hákon Magnússon








