Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Boðskiptagreining

Árangursrík boðskipti byggjast á traustri vitneskju um starfsumhverfi fyrirtækisins og þekkingu stjórnenda þess. Til að geta mótað stefnu í almannatengslum þurfa stjórnendur að vita hvernig best er að ná til hagsmunahópa fyrirtækisins.

Í boðskiptagreiningu felst að safnað er upplýsingum um hvernig fyrirtæki hagar boðskiptum sínum við skilgreinda hópa (t.d. viðskiptavini, fjölmiðla, stjórnmálamenn, starfsmenn, almenning). Upplýsinga er aflað með viðtölum við fulltrúa þessara hópa og ítarlegri greiningu á öllum þeim skilaboðum sem fyrirtæki miðlar til samfélagsins. Unnið er úr þessum upplýsingum eftir ákveðnum aðferðum og niðurstöður settar fram í skýrslu, ásamt ábendingum um leiðir til úrbóta.

Þekking