Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja
Fyrirtæki axla samfélagslega ábyrgð sína á mismundandi hátt. Krafan um að fyrirtæki starfi í sátt við umhverfi sitt og lífríki, virði mannréttindi og jafnrétti og stuðli með virkum hætti að aukinni vellíðan og velferð starfsfólks síns, er helsti hvati þeirrar auknu ábyrgðar.
Í sumum löndum hefur verið rætt um að setja lög sem geri stærri fyrirtækjum skylt að birta upplýsingar, t.d. í ársskýrslu, um hvað þau leggja af mörkum til samfélagsmála. Að baki þessari samfélagsþróun býr m.a. krafan um „samfélagslega ábyrga fjárfestingu“, þar sem aukin athygli á aðra rekstrarþætti en fjárhagslega afkomu knýja á um stefnuna. Skýrt dæmi um þetta er fjárfestingarstefna norska olíusjóðsins, sem losar sig þegar í stað við hlutabréf í fyrirtækjum sem sýna af sér ábyrgðarlausa samfélagslega hegðun.
Mörg fyrirtæki hér á landi hafa mótað sér umhverfisstefnu og vilja með því axla ábyrgð á sviði umhverfismála. Færri hafa markað sér skýra stefnu á sviði samfélags- og mannúðarmála. Ráðgjafar KOM hafa aðstoðað fjölmörg fyrirtæki við mótun stefnu á sviði samfélagsmála, innleiðingu hennar í heildarstefnu þeirra og við upplýsingagjöf til almennings og hagsmunaaðila.
Í sátt við umhverfið








