Samskipti við fjölmiðla
Fjölmiðlar móta almenningsálitið. Fagleg og góð samskipti við fjölmiðla eru meðal lykilforsendna fyrir árangursríkum almannatengslum.
Hjá KOM starfar fólk sem hefur unnið á öllum helstu miðlum landsins og hefur áralanga reynslu af samskiptum við fréttastjórnir.
Starfsmenn KOM annast upplýsingagjöf og fjölmiðlatengsl fyrir viðskiptavini. Í því felst m.a. samning fréttatilkynninga og annars upplýsingarefnis fyrir fjölmiðla, skipulagning og framkvæmd blaðamannafunda o.fl. Einnig veitir KOM viðskiptavinum þjálfun í fjölmiðlaframkomu.
Fjölmiðlatengsl








